• Dansiði (NÝTT)
  • Home
  • Plöturnar
    • Malbikið svífur
    • Allt er eitthvað
    • Þar sem himin ber við haf
  • Útgáfa
    • Dansiði (2018)
    • Vígin Falla (2017)
    • Af ávöxtunum (2015)
    • Fortíðarþrá (2013)
    • Hafið er svart (2012)
    • Þyrnigerðið (2012)
    • Skuldaólin (2011)
    • Allt er eitthvað (2010)
    • Hamingjan er hér (2010)
    • Uppreisnarklanið (2007)
    • Ofskynjunarkonan (2006)
  • Annað
    • Lífsskoðanir
    • Hljómsveitin Drangar
    • Ef ég gæti hugsana minna
    • Áhöfnin á Húna
    • Eilífðar smáblóm
    • Rangur Maður / Sólstrandargæjarnir
  • Dansiði (NÝTT)
  • Home
  • Plöturnar
    • Malbikið svífur
    • Allt er eitthvað
    • Þar sem himin ber við haf
  • Útgáfa
    • Dansiði (2018)
    • Vígin Falla (2017)
    • Af ávöxtunum (2015)
    • Fortíðarþrá (2013)
    • Hafið er svart (2012)
    • Þyrnigerðið (2012)
    • Skuldaólin (2011)
    • Allt er eitthvað (2010)
    • Hamingjan er hér (2010)
    • Uppreisnarklanið (2007)
    • Ofskynjunarkonan (2006)
  • Annað
    • Lífsskoðanir
    • Hljómsveitin Drangar
    • Ef ég gæti hugsana minna
    • Áhöfnin á Húna
    • Eilífðar smáblóm
    • Rangur Maður / Sólstrandargæjarnir
  Jónas Sig

Þyrnigerðið (2012)


Þyrnigerðið

Það eru klukkur
upp á veggjum
sem aldrei ganga
munu til baka

Það eru tankar
út með ströndum
sem frusu fastir
við þennan klaka

Og það er skrýtið
til þess að hugsa
að það var þessi
sami heimur

Þetta sama rúm
þetta rými
sem við áttum
aldrei saman

Fyrir þyrnigerðið

Það stoðar lítt að steyta
sinn hnefa
en komast ekkert áfram
með ekkert að gefa

Meðan á bakvið hverja hurð
er ný minning
þú situr bara fastur
ert andsetinn af efa 

Maður getur ekki bara sagt
"Það er allt í lagi
þó minn innri maður sé vofa!"
og það er einum of ódýrt
að geta bara verið gæji
rétt á meðan aðal spaðarnir sofa

En kannski er eitthvað nýtt
upphaf í boði
ef ég kemst mína leið
gegnum þyrnigerðið

Nú vekur mig nýr dagur
sem upprisinn er
úr rökkrinu
svo fagur

Ég hugsa mér til hreyfings
losa um fjötrana
þakka lífsbókinni
lexíuna

Ég brýst í gegnum gerðið
sem rífur hold mitt
það skiptir mig engu
því skipið bíður.

Ég reisi upp mastrið
með dúnhvítum seglum
ég sigli út á hafið
og rokið það blæs mína leið.

og við hittumst handan við hafið
þar sem heimurinn beið
við þyrnigerðið

Upplýsingar

Lag: Jónas Sigurðsson / Ómar Guðjónsson

Texti: Jónas Sigurðsson / Ásgrímur Ingi Arngrímsson

Jónas Sigurðsson ásamt Lúðrasveit Þorlákshafnar

Önnur útgáfa smáskífu af plötunni Þar sem himin ber við haf.  Jónas Sig og Lúðrasveit Þorlákshafnar.  Gefin út af ZX ehf, Október 2012.

Stjórn upptöku: Stefán Örn Gunnlaugsson

Mix/Útfærsla: Árni Bergmann Jóhannsson

Myndefni: Þórarinn F. Gylfason

Eftirvinnsla myndefnis: Guðmundur Bjarni Sigurðsson


Flytjendur:
Jónas Sigurðsson söngur, trommur, gítar, bassi, hljóðgervlar
Stefán Örn: raddir, forritun, hljóðgervlar
Ómar Guðjónsson: gítar
Fríða Dís Guðmundsdóttir: raddir
Lúðrasveit Þorlákshafnar: blástur

(@ZX) 2012 ÞYRNIGERÐIÐ


© COPYRIGHT 2017. ALL RIGHTS RESERVED. ZX EHF.